Skip to content


Rakstur og brún augu

Ég finn hvergi rakarastofu, en ég finn hárgreiðslustofu. Ég þarf að láta skafa þetta hár framan úr mér og ég tók ekki rakdót með, það er gaman að vera passlega villimannslegur í ferðalögum og svo er bæði ódýrt og miklu notalegra að láta einhvern annan gera þetta. Hún er brúneygð og talar enga ensku, en hún starir á mig brúnum augum á meðan skeggið hverfur. Þetta er ekki sama athöfn og hjá Torfa rakara á Hlemmi en hann er heldur ekki með svona falleg brún augu.

Posted in Uncategorized.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.