Bíólistinn 26-30
Wednesday, January 2nd, 2008
The Hoax var helsti innblástur eins listapistils í sumar, sem er alltaf kostur. Richard Gere hef ég sjaldan séð betri en sem loddarann Clifford Irving og leikstjórinn Lasse Hallström nær sér aftur á strik eftir að hafa kafað fulllangt ofan í sykurskálina.
Gildran (Klopka) var glettilega magnaður serbneskur þriller sem Hitchcock hefði verið alveg þokkalega sáttur við, um mann sem lendir í þeirri úlfakreppu að þurfa annað hvort að drepa mann eða láta sinn eigin son deyja, af því án blóðpeningana hefur hann ekki efni á aðgerðinni sem sonurinn þarf í veikindum sínum. Eini gallinn var að aðalleikarinn var einhvern veginn ekki alveg nógu sterkur, hann gerði allt rétt en manni fannst vanta sterkari karakter í aðalhlutverkið, enda faðirinn í mynd nánast allan tímann.
Deliver Us From Evil vísar í hina vafasömu kaþólsku kirkju sem virðist oft uppteknari við að breiða yfir misgjörðir barnaníðinga í preststétt heldur en að boða meint fagnaðarerindi. Mjög vel gerð heimildarmynd en hefði þó mátt kafa aðeins dýpra.
Knocked Up er í aukahlutverki í listapistli dagsins, í fyrsta Mogga ársins. Judd Apatow er náttúrulega snillingur og honum tókst meira að segja að láta mann fá örlitla samúð með dyravörðum heimsins, sem fá sjaldgæfa varnarræðu í myndinni sem er á löngum köflum drepfyndin. En hún daðrar aðeins við væmni auk þess sem helsti galli Apatows kemur enn og aftur í ljós þegar aukapersónurnar eru miklu áhugaverðari en aðalpersónurnar.
Sicko var mögnuð og Michael Moore virðist kominn aftur á réttan kjöl eftir Fahrenheit 911 sem hefði sjálfsagt fellt Bush hefði hún bara verið nógu góð. Hins vegar má enn hugga sig við það að vandamál myndarinnar eru fyrst og fremst Bandaríkjanna og hafa enn ekki verið flutt út í jafn ríkum mæli og stríð Bush forseta gegn gervallri heimsbyggðinni, afsakið, hryðjuverkum.