
Tvífarar dagsins eru stóra táin á Gregorins frá Nin og stóra táin á mér. Stóra táin á Gregorins er vissulega örlitlu stærri en þær eiga það sameiginlegt að mikil gæfa fylgir hverjum þeim sem snertir þær. Þeir sem vilja vita meira um Gregorins þurfa að lesa listapistil Moggans í dag (þriðjudag) – „Leníngrad, Króatíu“ – en þar má sjá risastóra mynd af þvottasnúrum og á þeirri mynd má einnig finna kött dagsins ef grannt er skoðað.
Og í tilefni þess að fyrsta myndin sem birtist eftir mig í Mogganum er af þvottasnúrum (ef undan er skilin frímerkismynd sem birtist af þessum übersvala tónlistarmanni hér) þá er vitaskuld rétt að endurbirta hér ljóð mósambísku húsmóðurinnar sem frumflutt var á Litla ljóta andarunganum fyrir tæpu ári og frumbirt á tregawöttunum ástkæru.
Þvottasnúra
Ég er húsmóðir í Mósambík
og ég fæ engin laun
Ég er húsmóðir í Mósambík
og ég elda ekki baun
Ég er húsmóðir í Mósambík
og ég þvæ blóð úr skyrtunni þinni
Ég er húsmóðir í Mósambík
og ég fæ engin laun
5 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.
Held að nú þurfir þú að fara setja 18 ára filter á síðuna þína. Fyrst að hér eru farnar að birtast hryllingsmyndir og mjög svo vafasamar nektamyndir af tánum á þér.
Börnin þurfa bara að horfast í augu við það einn daginn að blaðamenn eru líka með tær. Ég meina, við sáum nú ýmislegt vafasamt á okkar yngri árum og erum náttúrulega skemmdir fyrir lífstíð eftir það, þannig að það er ekki nema sanngjarnt að við skemmum börnin sem á eftir koma líka.
Aha! Man eftir þessu ljóði sem þú fluttir eftir dagskrána. Þetta var sama kvöld og þú komst með frábært komment um ljóðið mitt “Minningarfast I”, sem varð miklu betra eftir að ég skar burt það sem þú mældir með.
Þetta kemst alveg inn á topp 10 listann yfir tvífara
Þakka allan dansinn um síðustu helgi
Já, takk sömuleiðis - held barasta að tvífarar vikunnar hafi bara aldrei lent í neinni hættu það kvöldið, nema kannski þegar við Elli tókum vangadansinn