Ég varð eldri í gær og systir mín í Skopje verður eldri á morgun. Ef við værum á sömu slóðum værum við vís til þess að slá saman í sameiginlegt partí í leti okkar, þess í stað sleppi ég bara að halda uppá þetta en treysti þess í stað að Skopje verði máluð eldrauð á morgun, enda afmæli í Skopje augljóslega merkilegra en í Reykjavík.
Annars fékk ég naktar konur, ljóð og (hugsanlega) slæmar fréttir í afmælisgjöf að ógleymdum einhverjum afmæliskveðjum frá vinum mínum sem ég geymi ýmist hérna og / eða hérna þegar ég er ekki að nota þá, auk þess sem ég hef staðfestan grun um að skór og ryksuga séu í burðarliðnum. En ég tek vitaskuld ennþá við öllum góðum hörðum pökkum …
3 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.
orðið hugsanlega móðgaði mig og færibandaljóðgerð mína
Orðið hugsanlega átti við slæmu fréttirnar, færibandaljóðagerðin er hins vegar óhugsanlegt þrekvirki á listaverkafæribandi alheimsins.
Hæ, til hamingju með afmælið um daginn