Skip to content


Tímabundin ofvirkni mín og veðurguðanna

Ég las einhverjar 200-300 síður og skrifaði tæpar 30 síður þéttskrifaðar í Örmjúka orðið á tölvunni á eins og einum sólarhring. Ef þessir dagar verða bara aðeins algengari þá rúlla ég upp MA-ritgerðinni og eins og tveim-þrem skáldsögum fyrir haustið. Getur að vísu verið að ég þurfi að nota eitthvað af þessari skriforku uppá Mogga …

Og muna:

Aldrei nota s-orðið hérna aftur ef ég ætla að komast aftur í vinnuna án þess að drukkna. Bloggið er vitaskuld þaullesið af æðri máttarvöldum og þeim er ekkert um svona skefjalausa bjartsýni eins og birtist í færslunni hér fyrir neðan.

Posted in Uncategorized.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.