Ambaga Amaba

Friday, May 4th, 2007

amaba.jpgi

Ambaga
Amaba
texti
sem skiptist

ambaga
amaba
þverfaglegt ástarsamband
á umferðareyju
á Suðurgötu

ást
sem skiptist

ii

enginn maður er umferðareyja
algjörlega út af fyrir sig
sérhver maður er hluti af þjóðveginum
hluti af samgöngukerfinu
þegar strætókerfið versnar
þá stækkar borgin
dauði sérhvers manns stækkar mig
því þá fæ ég meira pláss
spyrðu ekki fyrir hvern umferðarljósin blikka
þau blikka þig

iii

ambaga
amaba
alhambra

síðasta vígið
márarnir eru farnir!

Evrópa er laus við helvítis arabana!

Franco ætlar
að opna kebabstand
í Alhambra
hinum megin
selur leigubílstjórinn pylsur

iv

Fjölmargar amöbutegundir lifa í mönnum. Sú þekktasta er án efa Entamoeba histolytica sem finnst í meltingavegi og veldur amöbublóðkreppusótt.

v

Amaba fjölgar sér með einfaldri frumuskiptingu

Líffræðineminn við íslenskunemann: Eigum við að stunda kynlausa æxlun?
Íslenskuneminn við líffræðinemann: Smitaðirðu mig af ambögu?

Blóðkreppusótt, umferðarljós, ávler, innsláttarvilla.

vi

Þetta ljóð varð til í kommentum við færsluna hér að neðan, enda eru kommentakerfi einmitt tæki bloggfærslna til þess að stunda kynlausa æxlun. Þar af leiðandi á ég ekkert í þessu ljóði, internetið bjó það til. Því finnst gaman að búa til ljóð en finnst ennþá skemmtilegra að stela myndum og stöku textabrotum af vísindavefnum. Svo er líka hellingur af klámi á vísindavefnum.

vii

Internetið er amaba, helvítis ambaga.

Fæðunám amöbu fer þannig fram að þegar einhver lífræn ögn verður á vegi hennar, þá umlykur hún ögnina með umfrymi sínu og gleypir hana.

Fæðunám ambögu fer fram í samræmdu prófunum.

3 Responses to “Ambaga Amaba”

  1. mikið assgoti er nú internetið gott skáld…

  2. Segðu, samt fá alltaf einhverjar manneskjur öll bókmenntaverðlaunin …

  3. Vó… þetta er virkilega töff!