Vegna rakalausra fullyrðinga í kommentakerfi hérna þá finnst mér rétt að taka eftirfarandi fram:
Ég er hvorki rótgróinn né marxískur. Hef ekki einu sinni lesið Kommúnistaávarpið en grunar einhvern veginn að Marx hafi verið frekar leiðinlegur gaur í partíum.
Annars komu nokkrir guttar í heimsókn áðan til að brjóta hnéskeljarnar á mér. Við sömdum hins vegar um að í staðinn fengju þeir Mótórhjóladagbækurnar lánaðar hjá mér og þeir lofuðu hátíðlega að skila mér tíu blaðsíðna ritgerð fyrir mánudaginn um tákngervingu mótórhjólsins í verkalýðsbaráttu í Rómönsku Ameríku.
2 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.
Já ertu ekki svona Maóisti?
Nei, ég er náttúrulega Engel-isti. The sidekicks will rule the world!