Húsnæðisleit
Wednesday, March 28th, 2007Það er verið að selja ofan af mér elsku bestu Öldugötuna þannig að mig mun vanta húsaskjól frá og með mánaðarmótunum maí / júní – og gæti alveg flutt fyrr ef ég dett niðrá eitthvað spennandi. Ef þið vitið um eitthvað spennandi þá getið þið smellt á þennan flipa og notað símanúmerið eða tölvupóstinn þar til þess að láta mig vita.
Ég þarf ekkert mikið pláss til að hlaupa um, en ég er náttúrulega með slurk af dóti sem ég vil helst sleppa við að koma í geymslu útí bæ. Þannig að lítil íbúð á skikkanlegu verði er ágætis kostur – og eins ef einhver veit um stærri íbúð með 2 svefnherbergjum þar sem væri hægt að deila leigu. Er jafnvel einhver skemmtilegur að leita líka og væri til í að leigja memm? Ég reyki ekki, drekk ekkert mjög mikið og er alveg hættur að dansa erótíska polkadansa.
Þannig að endilega hafiði samband, annars geri ég eitthvað róttækt. Eins og að fara að skoða smáauglýsingar eða bara að banka uppá þegar ég sé fallegt hús og spyrja hvort það sé ekki á lausu …
Þú færð aldrei íbúð ef þú ætlar að halda þessu reykleysi til streitu.
Þetta er bara af því ég hef aldrei lent í nógu slæmum félagsskap. Ég þarf náttúrulega bara að fá inní almennilegu reyk- og dópgreni til þess að læknast af þessum smáborgaraskap, það er hópþrýstingurinn sem blívur.
Þú verður bara að flytja norður.
Eitt enn. Ert ekki enn að dansa þessa erótísku dansa. Bara ekki lengur nakinn…