Skip to content


Bandí

Var plataður í bandí með mínútu fyrirvara. Mig minnti að ég hefði verið þokkalegur í bandíi – en svo mundi ég að það var útaf því að bandí og blak áttu það sameiginlegt að kosturinn við að spila það í leikfimitímum var sá að allir voru u.þ.b. jafnlélegir í því. En þessir gaurar kunnu í alvörunni að spila bandí. Þannig að ég var hörmulegur fyrst, mundi svo hvernig átti að spila bandí og lærði svo hvernig átti að spila bandí. Eftir það var þetta fínt en núna er litli puttinn á mér algjörlega tilfinningalaus. Ekki það að hinum puttunum hefur alltaf þótt hann frekar kaldlyndur …

Posted in Uncategorized.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.