Skip to content


Skandall

Stærsti skandall í sögu óskarsins var að klárast. Clint Eastwood tafsaði á línunum sínum en það var bara krúttlegt þegar hann kynnti sinn gamla samstarfsfélaga, Ennio Morricone, eitt magnaðasta tónskáld kvikmyndasögunnar. Það að hann hafi aldrei fengið óskarinn er margfalt meiri skandall en að Marty hafi ekki enn unnið. En hann er sumsé að fá afskaplega verðskuldaðan heiðursóskar. Síðan kemur smá upprifjun á ferlinum, gullfalleg tónlist fyllir stofuna – og svo dettur einhverjum fávita í hug að heiðra hann með því að láta Celine fokking Dion syngja??????

Ennio náði sér hins vegar rækilega niður á þeim og flutti alla ræðuna á ítölsku þótt við vitum öll að hann tali lítalausa ensku, þetta var ekkert annað en hefnd. Clint merkilega sleipur í ítölskunni raunar …

Posted in Uncategorized.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.