Skip to content


1. Skjaldbökur geta flogið (Lakposhtha hâm parvaz mikonand)

TurtlesCanFly.jpgSkjaldbökur geta flogið og sömuleiðis kúrdísk kvikmyndagerð. Yfirlýst markmið leikstjórans Bahman Ghobadi er að búa til alvöru menningu Kúrdískrar kvikmyndagerðar og með þessari mynd – sem og tveim öðrum sem rötuðu á kvikmyndahátíð í haust – hefur kúrdísk kvikmyndagerð náð forskoti á miklu eldri og virðulegri kvikmyndaiðnaði.

Hetjur myndarinnar eru börnin, bernskan sem lifir af endalaust stríð. Aðalpersónan er Soran, sem er aldrei kallaður annað en Sattelite sökum hæfileika sinna til þess að setja upp spánet nýjasta CNN-stríðsins. Hann er braskari bæjarins en með hjarta úr gulli og allt hans brask hefur það lokatakmark að hjálpa börnunum í þorpinu sem öll virðast meira og minna munaðarlaus, þeir foreldrar sem þó eru eftir eru of uppteknir við að horfa á fréttatímana. Soran kynnist þremur munaðarlausum systkynum - hinum skyggna Henkov, handalausum pilt sem gerir flesta hluti betur en tvíhentir jafnaldrar hans – systur hans Armin sem virðist vera fyrsta ást Sorans og lítils drengs sem er kjörbróðir þeirra, sonur einhverra þeirra sem drápu foreldra þeirra.

En Henkov er ekki einn um að vanta útlimi. Þessi börn láta skort á fótum og höndum ekki stöðva sig í að hlaupa um, leika sér og bjarga sér – þetta er jú einu sinni jarðsprengjuland. En þú munt aldrei sjá hjartahreinni börn og manngæska þeirra og samheldni bræða jafnvel kaldlyndustu gagnrýnendur. Þá má ekki gleyma bernskuást Sorans, Armin. Stúlkan sú er sorgin holdi klædd með gervalla veröldina á herðunum. Ef það er einhverjar leifar af sál eftir í okkur þá mun sama veröld vera á okkar herðum í lokin.

———————————————-

Tími fyrir drukna hesta og Hálfmáni, sem einnig voru sýndar á hátíðinni, voru sömuleiðis frábærar myndir og Ghobadi og Paskaljevic ótvíræðir sigurvegarar kvikmyndahátíðarinnar síðari nú í haust. Satt best að segja er ástæðan fyrir að Ghobadi fær fyrsta sætið sú að Skjaldbökurnar eru klárlega best af myndunum hans þremur á meðan ég á erfiðara með að gera upp á mynda Paskaljevic sem í raun deila öðru sætinu.

Posted in Uncategorized.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.