Skip to content


Burt með Villa

Af hverju er ekki ennþá búið að birta almennilega mynd af sigurvegara Tómasarverðlaunanna? Jú, af því það þarf alltaf að troða Gamla góða Villa með á allar myndirnar. Samdi hann máski bókina? Þetta er Ingunnar móment, þessir stjórnmálamenn komast á alveg nógu margar myndir. Kæmi svosum ekki á óvart að sökin væri jafnmikið ritstjóranna og vaktstjóranna, að minnsta kosti lenti ég í því í náminu þegar ég var tvo daga uppá Mogga og skrifaði frétt um afhendingu Nýsköpunarverðlaunanna að það voru tvær myndir sem komu til greina, annars vegar frekar léleg víðmynd af Ólafi Ragnari og sigurvegaranum, hin var frábær mynd af sigurvegaranum einum. Þið megið giska hvor varð ofaná. Heldur fólk virkilega að Villi og Óli selji svona mikið? Er einhver vandlega faldur kynþokki þarna sem fá alla til þess að lesa?

Posted in Bókmenntir, PóliTík.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.