Skip to content


Bless?

Tvö ár. Nákvæmlega tvö ár. 104 vikur. 730 dagar. 17520 klukkutímar. Rúm milljón mínútna. Sex komma þrjú milljón sjötíuogtvöþúsund sekúndur. Ef það gerist ekki eitthvað stórkostlegt innan þess tíma þá er ég farinn. Farinn búinn bless.

Kvöldið var gott en skerið er samt ennþá ömurlegra en fyrr.

Eitthvað stórkostlegt, við erum að tala um alvöru flugelda. Aldamótin sem aldrei voru, lífið sem aldrei var. Tvö ár, svo er ég fluttur. Ísland, þú ert komið á deadline.

Posted in viðburðir.

5 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.

  1. Starri said

    Hmmm…eiga það ekki að vera 104 vikur. Ef ég man rétt þá eru 52 vikur í árinu. Annars gerist ekkert nema að mar geri eitthvað sjálfur.

  2. Consider it corrected. En nei, þessi gamla klisja gengur sjaldnast alveg upp, það er sjaldnast nóg að gera eitthvað sjálfur ef hurðirnar eru áfram lokaðar.

  3. Hvaða kjeddling gaf þér á kjammann þetta kvöldið Ásgeir minn? Lífið er jafn ömurlegt sama hvar þú ert.

  4. Engin, mistirðu af setningunni um að kvöldið hefði verið gott? Eða finnst þér kjaftshögg frá konu til merkis um gott kvöld? Það skýrir svosum ýmislegt …

  5. Ég missti ekki af henni, allra síst framhaldinu: “…en skerið er samt ennþá ömurlegra en fyrr.”