Ég ætlaði að skrifa eitthvað smáræði hér um Súpernóvuna en það endaði í lengri grein sem birtist hérna á tregawöttunum undir nafninu Kynvilla, fullnæging, nauðgun og fleiri performansar.
Fyrir leslata fólkið sem vill fá styttri útgáfuna þá voru Zayara Alvarez, Dilana, Matt Hoffer og Jill Gioia áberandi best, Magni, Josh Logan og Phil Ritchie verða í botnbaráttunni en ættu þó að vera seif í bili sökum hins afburðavonda Chris Pearson sem er búin að nauðga einu lagi of mörgum nú þegar.

4 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.
Æji, þessi þarna sem tók Nirvana lagið - þetta var svo hallærislegt; fyrst standa grafkyrr og “lúkka kúl” og svo ALLT Í EINU “springa” af fítonskrafti (sem var í mesta lagi eins og kettlingur að leika sér að garnhnykli) með látum “brjálaðri” sviðsframkomu. Fannst þetta afskaplega hallærislegt, og fékk reyndar bar algeran kjánahroll þegar ég horfði á þetta. En hún er engu að síður með góða rödd og á eftir að ná langt, en ekki Magni.
En allt í kringum þetta RockStar er bara rugl og kjaftæði. Hverskonar illa rokkgrúppur leita að rokkhausum á þessa vegu? Mér finnst þetta eins ópersónulegt og ófagmannlegt og hægt verður. Þetta er fínt sem efni í sjónvarpsþátt en ekki í alvöru rokkhljómsveit. Jason Newsted, hent úr Metallicu, hver-sem-hann-er sem var í GnR, Axl Rose eini sem er í GnR, svo Tommy úr Mötley Crue - wtf? Ekki samansafn af bestu rokkurunum. Svo Dave Navarro viðundur veraldar! Málar sig sem einhvern metal gaur en er gjörsamlega metrósexúal út í gegn.
Farinn að horfa á Beverly Hills 90210
Maður talar ekki illa um Tommy Lee. Tommy var auðsjáanlega second in command á eftir Nikki Sixx. Og ef einhver fer að halda því fram að Mötley Crue hafi verið lélegt band þá á sá hinn sami ekki von á góðu.
Ertu að dissa kettlinga með garnhnykla? Nú treysti ég því að anorexíuvírakettirnir þínir klóri þig rækilega … annars hlustaði ég aldrei á Mötley Crue - en maðurinn hlýtur að hafa verið orðinn desperate að hanga þetta með Pamelu …
Það kom á óvart hvað Magni söng þetta vel, en sviðsframkoman var frekar slæm hjá greyinu. Held að hann hangi samt inní keppninni frekar en gaurinn sem nauðgaði Roxanne.
Annars fannst mér uppáhaldið þitt hún Zayara bara nákvæmlega ekkert góð. A.m.k. ekki miðað við Diliönu (sem fór þó aðeins fram úr sjálfri sér með geðveikishoppunum í endann) og hina bráðhressu Patrice Pike sem var langskemmtilegast að horfa og hlusta á.