Óli Þórðar hættir með Akranes á morgun, þið heyrðuð það hér fyrst. Ef þetta rætist þá verð ég vafalaust fyrsti maðurinn til þess að ná í fótboltaskúbb á ljóðakvöldi. Í kvöld var sumsé upprisa Nykurs með ljóðum að ógleymdu óforskömmuðu plöggi frá undirrituðum. Besta setning kvöldsins utan dagskrár var svo vafalaust „Þú ert miklu fallegri hrist.“
Archives
- June 2008
- May 2008
- April 2008
- March 2008
- February 2008
- January 2008
- December 2007
- November 2007
- October 2007
- September 2007
- August 2007
- July 2007
- June 2007
- May 2007
- April 2007
- March 2007
- February 2007
- January 2007
- December 2006
- November 2006
- October 2006
- September 2006
- August 2006
- July 2006
- June 2006
- May 2006
- April 2006
- March 2006
- February 2006
- January 2006
- December 2005
- November 2005
- October 2005
6 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.
Veistu af hverju ég les varla bloggið þitt þessa dagana? Ég held þú vitir það. Það er ekkert nema fótbolti á þessum andskota! Eignastu kærustu og vertu dömpaður og skrifaðu þunglyndislegar færslur! Almenningur elskar þegar fólk opinberar sjálft sig opinberlega. Reyndar á það kannski ekki við um okkur ófræga fólkið, ekki jafn mikið að minnsta kosti - en skítt með það.
Mér fannst það skemmtilegt plögg, sér í lagi vísunin í Draumalandið.
Framtíð Óla Þórðar ræðst á næstu tveimur dögum
Kveðja,
- kg.
Siggi, heldurðu að ég sé ekki fullfær um að skrifa þunglyndislegar fótboltafærslur næst þegar mér verður dömpað? Þetta er að sjálfsögðu allt gert til þess að lækna ykkur antisportistana … Þó fótboltafærslurnar séu margar minnst um fótbolta en það er annað mál …
Tilvísun í Draumalandið? Jú, nafnið auðvitað, ég samdi það náttúrulega ekki …
Óla Þórðar sagt upp á næstunni, jú, eins og sést á þessu endar þetta alltaf á að einhverjum verður dömpað …
Nei, ekki nafnið, heldur þetta með fjölda tára = fjöldi dropa í hafinu. Til að komast að þeirri niðurstöðu þarf að víkka skilgreininguna á tári og taka inn aðra líkamsvessa. Minnti mig á terawattstundirnar og þakrennurnar.
Þú meinar, þýðir það nokkuð að Búdda hafi verið í Framsóknarflokknum?