Nú fyrst fer þetta að verða gaman. Enda fátt skemmtilegra en vítaspyrnukeppni, það vita allir alvöru fagurkerar um fótbolta. Að minnsta kosti ef maður er sæmilega hlutlaus - annars er hún uppskrift að enn einni staðfestingunni á óréttlæti heimsins.
Nokkrir leikir virka nokkuð öruggir. England vinnur Ekvador nema kosningastjóri VG eigi ennþá öflugri svartagaldur heldur en mig grunaði, Brasilíumenn eru komnir í gang og vinna Ghana og Argentínumenn eru alltof sterkir fyrir Mexíkana.
Þjóðverjar eiga fyrir höndum mjög erfiðan leik gegn Svíum sem þeir vinna nær örugglega, þó það verði sjálfsagt í framlengingu ef ekki vítakeppni. Eins trúi ég varla öðru en að Ítalir vinni Ástrali en kengúrurnar hafa þó verið að spila fjandi vel og fyrir hjátrúarfulla þá er rétt að rifja upp að Guus Hiddink mætti með annað spútniklið í 16-liða úrslitin fyrir fjórum árum og sendi Ítalina heim.
Slakasta lið fjórðungsúrslitanna verður svo væntanlega sigurvegarinn úr leik Sviss og Úkraínu. Svisslendingar hafa þó spilað mun betur en menn bjuggust við og hafa ekki fengið mark á sig – það virðist vera að Senderos hafi tekið lásinn með sér úr Arsenalvörninni úr meistaradeildinni á meðan Fílabeinsvörnin er götótt þrátt fyrir Toure og Eboue og Lehmann greyið er náttúrulega ekki með neina vörn fyrir framan sig núna. Held samt að Úkraína taki þetta þó Sviss sé með betra lið, Sheva klárar þetta einn síns liðs. Ástæðan fyrir þessari óskhyggju í mér er aðallega hvað Ólafur Kristjánsson hefur staglast endalaust á mikilvægi liðsheildarinnar í útsendingum dagsins.
Svo eru tveir leikir sem ættu ekkert síður heima í að minnsta kosti undanúrslitum. Portúgal og Holland hafa spilað ósköp svipað, hafa siglt mjög örugglega í gegnum þetta án þess að hafa þurft að hafa mikið fyrir hlutunum. Portúgalir hafa tak á Hollendingum, komu í veg fyrir að þeir kæmust á síðustu HM og slógu þá út í undanúrslitum EM fyrir tveimur árum. Ég held með Hollandi en ég held Portúgalska liðið sé heilsteyptara eins og er, lið Marco van er ungt og lítt mótað og líklegra til að toppa á EM eftir tvö ár eða jafnvel HM þar á eftir.
Þá er það Spánn-Frakkland. Spánverjar hafa spilað miklu betur en Frakkarnir hafa sterkt tak á þeim. Af einhverjum ástæðum fékk ég svo rosalega sterkt handbolta deja vú frá því fyrir HM á Íslandi fyrir ellefu árum. Þá mættust þau á sama stað í keppninni, Spánverjar voru í góðum gír en Frakkarnir voru rétt að komast í gírinn - og urðu á endanum heimsmeistarar. Óskhyggja? Já, örugglega, en ég er alltíeinu fullur bjartsýni um að Frakkar komist áfram. Synd samt ef Spánverjar detta út, þeir eiga það alls ekki skilið miðað við spilamennskuna hingað til. Maður vildi miklu frekar vilja sjá Úkraínu og Sviss bæði út úr kuldanum, þrátt fyrir aðdáun mína á Shevschenko (a.m.k. á meðan hann hefur ekki enn spilað leik fyrir Chelski).
Ef þetta gengur eftir mætast þessi lið svo í fjórðungsúrslitum:
Þýskaland – Argentína, England – Portúgal, Ítalía – Úkraína og Brasilía – Frakkland.
Sýnist Ítalir eina liðið sem ætti að eiga nokkuð greiða leið í undanúrslitin …
Svo skora ég á hitt vaktmannabókmenntafræðiHMbloggið að spá líka … tilvalið að efna til vaktmannaeinvígis …
0 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.