Sigurskáldið 1

Tuesday, April 18th, 2006

Ljóðasamkeppni Fréttablaðsins hófst með fyrstu viðureign fjórðungsúrslitanna í dag og ég var víst búinn að lofa að fjalla um keppnina. Það sem maður kemur sér í í partíum …

Ekki byrja ósköpin nú gæfulega. Brenndur af fjölda hópverkefna í gegnum tíðina hafði ég miklar efasemdir um að tvær stúlkur að skrifa lítið sex lína ljóð væri góð hugmynd. Eftir að hafa lesið „Sannleikur allífsins“ í flutningi Fjöllistarhópsins Pjöllu þá er ég sannfærður. Það er bara ekkert í gangi, dæmigert feikljóð þar sem frasarnir eru fléttaðir saman í von um að einhver slysist til að búa til merkingu úr því.

Titillaust ljóð Ástu Heiðrúnar Elísabetar Pétursdóttur er mun betra. Sjarmerandi einlægni í gangi, sjónvarpspælingarnar falla þó hálf flatar (og í guðanna bænum ekki skrifa ðe ósí, íslensk stafsetning á ensku var ekki fyndin þegar hún var í tísku og er ennþá ófyndnari núna). Þetta ljóð er engin snilld, en hins vegar akkúrat ljóðið sem ljóðskáld eru líkleg til að skrifa rétt áður en þau gera eitthvað brilljant.

Hvað varð annars um Heiðu næturvarðarheiðingja? Átti hún ekki líka að vera í dómnefnd?

Comments are closed.