Örverpið
Stundum finnst mér Ísland, eða öllu heldur Íslendingar, vera eins og örverpi í fjölskyldu. Örverpi sem er vant því að flest sé látið eftir því. Okkur finnst í mörgum tilfellum að við höfum sérstöðu vegna þess að við erum bara 300.000 manns og þess vegna eigi að gilda aðrar reglur um okkur en hina. Þetta sýnir sig t.d. í loftslagsmálum. Í stað þess að sýna ábyrgð keyrum við áfram stóriðjustefnu á undanþágum frá Kyoto-bókuninni á meðan hlýnun jarðar eykst, og réttlætum sjálf okkur með því að við séum þó að nota endurnýtanlega orku til að menga umhverfið. Við erum líka svo lítil og eigum svo mikið inni, að við eigum rétt á því taka ekki ábyrgð í loftslagsmálum.
Nú hefur komið upp nýtt tilefni fyrir okkur til að hanga í pilsfaldi þess sem öllu ræður og grenja út undanþágu vegna smæðar okkar og fámennis. Í EES-samningnum leynist nefnilega undanþága fyrir okkur til að stjórna, og þar með takmarka, komu verkafólks frá aðildarlöndum EES til Íslands. En hví skyldum við vilja nýta þessa undanþágu? Jú, vegna þess að hérlendis nýtur það vaxandi hylli að hengja bakara fyrir smið!
Verkafólk af erlendum uppruna er í mörgum tilfellum tilbúið að vinna fyrir lágmarkslaun og eru þau þess vegna álitin hættulegir keppinautar. Þau eru sökuð um að taka vinnuna frá heiðarlegu fólki, sem fær að taka pokann sinn með þeim orðum að það verði létt að finna innflytjendur sem vilja vinna fyrir lúsarlaun. En hver er illvirkinn í þessu dæmi? Eru það innflytjendurnir sem að vilja bara fá vinnu til að eiga fyrir salti í grautinn? Eða eru það atvinnurekendur (blessunarlega ekki allir samt) sem sjá sér leik á borði til að græða meira, með því að borga innflytjendum lágmarkslaun eða jafnvel minna en það, og láta sig gamla og trausta starfsmenn engu varða þegar valið stendur á milli þeirra og örlítið meiri peninga?
Til þess að eyða þessu vandamáli þarf að hækka lágmarkslaun, ekki loka landinu. Þegar að við okkur blasa upphrópanir eins og „Erlendir ríkisborgarar eru 9% vinnuafls á Íslandi!“ þurfum við að skoða hvað þessi staðreynd þýðir. Hvort er þetta góð eða slæm staðreynd? Það er ekki hægt að lesa það út úr setningunni einni og sér. Við getum hins vegar bætt þessum staðreyndum við:
Atvinnuleysi á Íslandi hefur ekki verið minna í 6 ár.
Þátttaka útlendinga á íslenskum vinnumarkaði sparaði meðalfjölskyldu um 123.000 kr. síðasta ár. Skuldir fjölskyldunnar hefðu jafnframt verið um tvö hundruð þúsund krónum hærri án þátttöku þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hefur lögbrotum þar sem erlendir ríkisborgarar eiga hlut að máli ekki fjölgað.
Á þessu sést hve mikilvægt það er að fá ekki hland fyrir hjartað vegna samhengislausra staðhæfinga, heldur skoða heildarmyndina. Við skulum ekki ræða málefni heils samfélagshóps í upphrópunum. Við skulum ræða þau á málefnalegan og mannúðlegan hátt. Við skulum breyta kerfinu þannig að innflytjendur séu upplýstir um réttindi sín og skyldur og jafnrétti ríki á vinnumarkaði. Við skulum bæta íslenskukennslu fyrir útlendinga. Og síðast en ekki síst, þá skulum við þroskast, sleppa pilsfaldinum, hætta að lifa á undanþágum í krónískri minnimáttarkennd og ofdekri vegna smæðar okkar, og sýna í stað þess ábyrgð og sanngirni.
Greinin birtist einnig á vinstri.is
3 Comments
Elías Jón on April 6th, 2007
Ég er yngstur í minni fjölskyldu en tel mig ekki vera örverpi. Örverpið er lang yngsta barnið og nýtur þess vegna óskiptrar athygli ekki bara foreldranna heldur systkyna líka.
En ég þó ekkert endilega viss um að þessi staðalímynd sem Steinunn dregur upp af örverpum fái staðist skoðun. Mér finnst það þó ekki koma niðri á greininni því það er alveg augljóst hvað hún er að meina með líkingunni.
Ásgeir on April 6th, 2007
Svona, svona Elli, þú mátt alveg vera með í byltingunni þótt ég sé meira örverpi en þú
Ásgeir on April 6th, 2007
Ég mótmæli þessum örverparógi harðlega. Frjálslyndir eru auðvitað dæmigerð elstu börn, erkikapítalistar sem eru vanir því að erfa gervallt konungsríkið og giftast frænku sinni eða frænda til þess að hafa þetta nú nógu fjandi einræktað. Á meðan halda örverpin útí heim til þess að losna úr átthagafjötrunum og öðlast þroska og víðsýni sem elstu börnin geta aðeins látið sig dreyma um. Að lokum: Örverpi allra landa sameinist!