Oftrú á auglýsingar?

Í vetur hefur gengið illa að fá starfsfólk á frístundaheimi ÍTR sem hefur orðið þess valdandi að tugir barna eru nú á biðlista eftir plássi á þeim. Formaður ÍTR og borgarfulltrúi Framsóknarflokksins skrifaði stutta grein um ástandið í Fréttablaðinu í dag. Þar viðurkennir hann að ástandið sé slæmt en reynir svo að réttlæta það með því að segja að það sé þó skárra en fyrir ári síðan.

Hann heldur svo áfram með því að segja að hann hafi gert mikið til þess að laða að starfsfólk. Af lýsingum hans að dæma virðast þær aðgerðir aðallega felast í því að panta fleiri auglýsingar. Hann telur því að lausnin á starfsmannahallærinu sé að auglýsa meira eftir starfsfólki. Með fullri virðingu fyrir formanni ÍTR og hæfni hans í að panta auglýsingar þá held ég að flestir viti að það vanti starfsfólk á frístundaheimilin og störfin séu í sjálfu sér mjög spennandi. Fleiri auglýsingar eru því ekki lausn vandans.

Í haust þegar var ég að svipast um eftir hlutastarfi rakst ég á viðtal við formann ÍTR þar sem hann lýsti áhyggjum sínum yfir því hve illa gengi að manna frístundaheimilin. Í viðtalinu tók hvatti hann námsmenn sérstaklega til að sækja um þessi störf. Ég hugsaði með mér að þetta hlytu að vera spennandi störf. Auk þess er ég námsmaður. Ég fór því á netið og sótti um starf á frístundaheimili. Næsta dag var hringt í mig og mér boðið starf.

Ég var mjög glaður yfir því að svo fljótt væri hringt í mig. Þrátt fyrir það vildi ég fá að vita aðeins meira um starfið en ég vissi þá áður en ég réði mig. Ég spurði því nánar út í starfið. Svörin við þeim spurningum drógu ekki úr áhuga mínum, þvert á móti. Næst spurði ég um launin fyrir 30% starfshlutfall. Svörin við þeirri spurningu gerðu mig orðlausan og jafnvel pínulítið ringlaðan.

Fyrir 30% starfshlutfall, þ.e. vinnu frá 13 til 17 þrjá daga vikunnar, voru launin um 38 þúsund krónur á mánuði mánuðinn(heildarlaun fyrir allan frádrátt). Miðað við að fjórar vikur séu í mánuði er tímakaupið 791 króna.

Þegar ég hafði áttað mig og fengið málið aftur þakkaði ég pent fyrir mig sagði að ég sægi mér ekki fært að vinna fyrir svo lág laun. Ég gæti sennilega fengið hærra tímakaup fyrir að bera út dagblöð eða týna dósir. Eftir á að hyggja þá finnst mér það hrein móðgun að bjóða nokkrum manni á Íslandi slík laun og sérstaklega fyrir svo mikilvægt og ábyrgðarfullt starf. Námsmenn ættu reyndar að vera sérstaklega móðgaðir út í formann ÍTR fyrir að hafa hvatt þá sérstaklega um að sækja um þessi störf.

Þrátt fyrir að auglýsingar hafi reynst Framsóknarflokknum vel þá verða þeir að horfast við í augu við það að lausnin á starfsmannahallærinu felst ekki í því að auglýsa meira. Þessi störf eru sérstaklega áhugaverð og gefandi en þeim fylgir einnig mikil ábyrgð. Ef þau væru eðlilega launuð þá yrði slegist um þau. Svo má ekki gleyma að séu störf mikið auglýst er það augljós vísbending um skort á starfsfólki sem aftur bendir til þess að starfið sé ekki spennandi.

Elías Jón Guðjónsson

Leave a Comment