Slys?

Nú um þessar mundir er rekinn mikill áróður fyrir, og reyndar líka gegn, stóriðju og eru þar ýmis rök notuð. Ein rökin sem mig minnir endilega að ég hafi heyrt notuð eru þau að störf í stóriðju séu alls ekki eins hættuleg og verið hafi og af sé látið. Þetta er mjög alvarleg blekking.


Í vissri ónefndri járnblöndunarstóriðju þar sem ég vinn sem vélvirki hefur verið starfað mjög skipulega við að festa þessa blekkingu í sessi. Verksmiðja þessi er í eigu stórs alþjóðlegs fyrirtækis sem rekur margar verksmiðjur. Í hverri verksmiðju er reiknuð út H-tala. Þessi tala er einhver stuðull sem sýnir hversu slys séu algeng í verksmiðjunum, lægri H-tala = færri slys = betri verksmiðja! Ekki eru mörg ár síðan farið var að bera saman þessa H-tölu milli verksmiðja og í upphafi fannst manni þetta bara sniðugt, ég meina myndi þetta ekki bara fækka slysum? Jú það gerði það svo um munaði, slys hættu nánast alveg að þekkjast en aftur á móti urðu óhöpp mjög algeng.

Þetta voru líka allt bara “smávægileg” óhöpp eins og beinbrot og annars/þriðjastigs brunasár. Ef þetta væru slys myndi það þýða margra vikna fjarvistir frá vinnu en af því þetta eru bara óhöpp eru starfsmennirnir neyddir til að mæta næsta dag þrátt fyrir að vera algerlega óvinnufærir bara til að stimpla sig inn, þar með er það ekki slys heldur aðeins óhapp. Í grófustu tilfellunum var það ekki talið slys þó starfsmaðurinn lægi á sjúkrahúsi vegna þess að hann hafði bara “skerta starfsgetu vegna óhapps” en alls ekki það að hann hafi orðið fyrir slysi.

Eins teljast slys á verktökum ekki með, þeir eru jú ekki starfsmenn verksmiðjunnar. Það gerir ekkert til þó vélvirki verði fyrir lyftara eða brennist á sjóðandi kælivatni svo lengi sem hann starfar hjá verktakafyrirtæki. Þrátt fyrir að verktakinn vinni aldrei annars staðar en í verksmiðjunni og fyrirtækið sem hann vinnur hjá sé í eigu verksmiðjunnar þá er hann ekki með í H-tölunni.

Fyrst var ég jákvæður en þegar ég sá að þetta væru bara blekkingar var ég tiltölulega hlutlaus. Hverju breytti það fyrir mig þó forstjórarnir færu í standpínukeppni á fundum um hver ætti öruggustu verksmiðjuna. En hlutirnir eru ekki svona einfaldir, þegar verksmiðjan mín náði 1000 slysalausum dögum í röð kom frétt í blaðið um það. Þrátt fyrir að skömmu áður hefði ég orðið vitni að gríðarhörðum árekstri tveggja lyftara sem orsakaði sjúkrahúsvist hjá öðrum starfsmanninum. Það kom frétt og fólkið í landinu veit ekki betur en sú frétt hafi verið sönn og rétt.

Þessar blekkingar eru nú stóriðjuagentarnir farnir að nota til að slá ryki í augu almennings. Vont mál.

Sverrir Aðalsteinn Jónsson

Leave a Comment